Gunnar aftur til Keflavíkur

Gunnar Ólafsson í leik með Keflavík.
Gunnar Ólafsson í leik með Keflavík. Ljósmynd/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Körfuboltamaðurinn Gunnar Ólafsson er genginn í raðir Keflavíkur á nýjan leik, en hann hefur leikið með St. Francis háskólanum í Bandaríkjunum undanfarin þrjú ár. Karfan.is greindi frá í kvöld. 

Gunnar er 24 ára framherji og lék hann með Keflavík árið 2014. Þá skoraði hann 8 stig, tók 3 fráköst að meðaltali á 22 mínútum í leik. 

Í fyrra lék Gunnar fimm leiki fyrir A-landsliðið og ætti því að vera góður styrkur fyrir Keflavík, en Sverrir Þór Sverrisson er tekinn við þjálfun liðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert