Mistök að hafa ekki haft betra eftirlit

Þorsteinn segir ekkert liggja fyrir sem sýni að hann hafi …
Þorsteinn segir ekkert liggja fyrir sem sýni að hann hafi gefið fyrirmæli um ólöglegar fyrirgreiðslur, eins og Jóhannes heldur fram. jósmynd/Skjáskot

Í nýjum þætti frá útgerðarfyrirtækinu Samherja er fjallað sérstaklega um hegðun Jóhannesar Stefánssonar á síðustu mánuðum hans í starfi fyrir fyrirtækið.

Morgunblaðið hefur þáttinn undir höndum og í honum er fullyrt að Jóhannes, sem síðar ljóstraði upp um meintar mútugreiðslur Samherja til namibískra stjórnmálamanna, hafi árið 2016 verið farinn að leggja á ráðin um að fara á bak við Samherja og hefja rekstur í Namibíu með öðru útgerðarfyrirtæki og „nýta sér þau viðskiptasambönd sem félög tengd Samherja höfðu byggt upp í landinu“.

Samherji hefur afhent embætti héraðssaksóknara allar dagbækur Jóhannesar sem hann hélt á meðan hann stýrði félögum Samherja í Namibíu. Að sögn fyrirtækisins gefur ekkert í þessum dagbókarskrifum til kynna að Jóhannes hafi fengið fyrirmæli um mútugreiðslur eða aðra óeðlilega viðskiptahætti frá Íslandi. Þessar dagbækur fundust á drifi sem fannst við starfslok Jóhannesar árið 2016.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir í þættinum að Jóhannes haldi því fram að hann hafi fengið fyrirmæli um ólöglegar greiðslur í gegnum aðrar leiðir en tölvupóst þar sem hann hafi ekki tölvupósta máli sínu til stuðnings. Þorsteinn segir það þó rangt að hann hafi nokkru sinni gefið slík fyrirmæli. Mistök Samherja felist hins vegar í að að hafa ekki haft betra eftirlit með rekstrinum í Namibíu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »