86 sagt upp störfum á Akranesi

HB Grandi á Akranesi.
HB Grandi á Akranesi. mbl.is/Sigurður Bogi

Forsvarsmenn HB Granda tilkynntu trúnaðarmönnum starfsmanna fyrirtækisins á Akranesi á fundi í dag að botnfiskvinnsla þess í bænum yrði lögð af frá og með 1. september. Viðræður á milli HB Granda og Akraneskaupstaðar um bætta aðstöðu fyrirtækisins hafa verið gagnlegar að mati fyrirtækisins en ekki breytt fyrri áformum þess.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HB Granda til Kauphallarinnar. „Viðræðurnar hafa nýst vel til gagnkvæmra upplýsinga og munu gagnast aðilum til framtíðar. Niðurstaða viðræðna hefur þó ekki breytt þeim áformum HB Granda að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við botnfiskvinnslu félagsins í Reykjavík 1. september næstkomandi.“

Enn fremur segir að 270 manns starfi hjá HB Granda á Akranesi og dótturfélögum fyrirtækisins og þar af fái 86 uppsagnarbréf um næstu mánaðamót. „Samtímis og jafnframt verður starfsfólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og dótturfélögum í Reykjavík og á Akranesi. Vonir standa til að hægt verði að bjóða öllu starfsfólki sem þess óskar starf við hæfi.“

Þá segir að starfsfólki sem ekki fái vinnu við hæfi bjóðist aðstoð við atvinnuleit á vegum HB Granda. Fyrirtækið muni hafa samráð við trúnaðarmenn og stéttarfélög þeirra. Eftir sem áður reki HB Grandi uppsjávarvinnslu, fiskimjölsverksmiðju og dótturfélögin Norðanfisk og Vigni G. Jónsson á Akranesi. Félagið hyggst leggja kraft í að efla þessar rekstrareiningar og fullvinnslu sjávarafurða á Akranesi.

„Forráðamenn Akraneskaupstaðar og HB Granda munu halda áfram viðræðum um að standa að frekari uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi. Einn liður í því er að fulltrúar Akraneskaupstaðar í Faxaflóahöfnum beiti sér fyrir því að ráðist verði í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á Akraneshöfn,“ segir að lokum í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.8.24 461,39 kr/kg
Þorskur, slægður 23.8.24 369,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.8.24 268,44 kr/kg
Ýsa, slægð 23.8.24 235,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.8.24 161,02 kr/kg
Ufsi, slægður 23.8.24 274,20 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.8.24 209,61 kr/kg
Litli karfi 16.8.24 37,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.8.24 29,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.8.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 915 kg
Steinbítur 460 kg
Ýsa 293 kg
Keila 126 kg
Ufsi 21 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 1.824 kg
24.8.24 Sævík GK 757 Lína
Þorskur 13.001 kg
Hlýri 190 kg
Keila 163 kg
Karfi 151 kg
Grálúða 2 kg
Samtals 13.507 kg
24.8.24 Jón Hákon BA 61 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 2.027 kg
Samtals 2.027 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.8.24 461,39 kr/kg
Þorskur, slægður 23.8.24 369,93 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.8.24 268,44 kr/kg
Ýsa, slægð 23.8.24 235,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.8.24 161,02 kr/kg
Ufsi, slægður 23.8.24 274,20 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.8.24 209,61 kr/kg
Litli karfi 16.8.24 37,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.8.24 29,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.8.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 915 kg
Steinbítur 460 kg
Ýsa 293 kg
Keila 126 kg
Ufsi 21 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 1.824 kg
24.8.24 Sævík GK 757 Lína
Þorskur 13.001 kg
Hlýri 190 kg
Keila 163 kg
Karfi 151 kg
Grálúða 2 kg
Samtals 13.507 kg
24.8.24 Jón Hákon BA 61 Rækjuvarpa
Úthafsrækja 2.027 kg
Samtals 2.027 kg

Skoða allar landanir »