Segja samning við Breta vonbrigði

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, segir samning Ísland og Breta …
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, segir samning Ísland og Breta vonbrigði þar sem ekki hafi verið tryggt bætt markaðsaðgengi fyrir sjávarafurðir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja nýjan viðskiptasamning milli Íslands og Bretlands ekki fela í sér bættan markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir sem viðheldur ófullnægjandi samkeppnisstöðu fiskvinnslu hér á landi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS.

„Einir stærstu viðskiptahagsmunir Íslands gagnvart Bretlandi felast í sjávarafurðum. Ríflega 60% af vöruútflutningi til Bretlands samanstanda af sjávarafurðum. Það hefði því mátt ætla að þar lægi þunginn í viðræðum við Breta um fríverslun, því fjölmörg tækifæri eru til sóknar,“ fullyrðir Heiðrún Lind í tilkynningunni.

Þá hamli háir tollar á einstakar afurðir því að vinnsla geti farið fram hér á landi og bendir Heiðrún Lind á lax, karfa og ýmsar flatfiskategundir sem í dag eru fluttar óunnar úr landi.

„Þessu hefði verið hægt að breyta með betri markaðsaðgangi gagnvart Bretlandi. Í þeim fríverslunarsamningi sem var undirritaður var þetta, einhverra hluta vegna, ekki sótt. Tækifærin voru ekki gripin. Að þessu leyti veldur samningurinn vonbrigðum. Verðmæti, sem hægt hefði verið að sækja með bættum tollakjörum, verða ekki til,“ segir hún.

Tilkynningin í heild:

Undir lok liðinnar viku var tilkynnt að nýr fríverslunarsamningur við Bretland væri í höfn. Útganga Bretlands úr ESB skapaði mikla óvissu og því voru tíðindin ánægjuleg. Bretar eru mikil vina- og samstarfsþjóð og á grundvelli EES-samningsins hefur markaðsaðgangur fyrir vörur frá Íslandi verið með ágætum. Það var því mikilvægt að tryggja að svo yrði áfram gagnvart Bretlandi utan ESB.

Einir stærstu viðskiptahagsmunir Íslands gagnvart Bretlandi felast í sjávarafurðum. Ríflega 60% af vöruútflutningi til Bretlands samanstanda af sjávarafurðum. Það hefði því mátt ætla að þar lægi þunginn í viðræðum við Breta um fríverslun, því fjölmörg tækifæri eru til sóknar.

Tímarnir breytast og menn og markaðir með. Aukin áhersla og metnaður Íslendinga á vinnslu sjávarafurða, til að auka verðmætasköpun enn frekar, kallaði á endurskoðun á gildandi markaðsaðgangi. Raunin er því miður sú, að háir tollar á einstaka sjávarafurðir hamla því verulega að vinnsla þeirra sé rekstrarlega möguleg hér á landi. Má þar helst nefna lax, karfa og ýmsar flatfiskategundir, en þessar afurðir eru að miklu leyti fluttar óunnar úr landi.

Þessu hefði verið hægt að breyta með betri markaðsaðgangi gagnvart Bretlandi. Í þeim fríverslunarsamningi sem var undirritaður var þetta, einhverra hluta vegna, ekki sótt. Tækifærin voru ekki gripin. Að þessu leyti veldur samningurinn vonbrigðum. Verðmæti, sem hægt hefði verið að sækja með bættum tollakjörum, verða ekki til.

Til að tryggja áframhaldandi góð lífskjör hér á landi þarf að auka enn frekar verðmætasköpun og útflutning. Sjávarútvegur gegnir þar mikilvægu hlutverki, enda má auka virði afurða enn frekar með aukinni vinnslu á Íslandi. Með nýjum fríverslunarsamningi er hins vegar ljóst að á því kann að verða bið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 413,47 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 302,00 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 139,61 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,72 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,79 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

12.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 507 kg
Keila 153 kg
Steinbítur 145 kg
Ufsi 10 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 824 kg
12.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.448 kg
Samtals 2.448 kg
12.5.24 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 6.413 kg
Þorskur 4.005 kg
Þykkvalúra 3.602 kg
Ufsi 2.339 kg
Skarkoli 2.284 kg
Langa 516 kg
Steinbítur 345 kg
Samtals 19.504 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 413,47 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 302,00 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 139,61 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,72 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,79 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

12.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 507 kg
Keila 153 kg
Steinbítur 145 kg
Ufsi 10 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 824 kg
12.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.448 kg
Samtals 2.448 kg
12.5.24 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 6.413 kg
Þorskur 4.005 kg
Þykkvalúra 3.602 kg
Ufsi 2.339 kg
Skarkoli 2.284 kg
Langa 516 kg
Steinbítur 345 kg
Samtals 19.504 kg

Skoða allar landanir »