Börkur NK aflaði 1.500 tonnum af makríl

Börkur NK kom með 1.500 tonn af makríl til Neskaupstaðar.
Börkur NK kom með 1.500 tonn af makríl til Neskaupstaðar. Ljósmynd/Smári Geirsson

Börkur NK kom með um 1.500 tonn af makríl til Neskaupstaðar í gærkvöldi. Vinnsla hófst þegar úr skipinu.

Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar.

Skipstjórinn Hálfdan Hálfdanarson var spurður hvar makríllinn hafi fengist.

„Við hittum á fisk í fyrrakvöld í Rósagarðinum vestan við Þórsbanka og það gekk vel að veiða. Við erum í veiðisamstarfi með Beiti, Barða, Vilhelm Þorsteinssyni og Margréti og það tók stuttan tíma að fá þennan afla. Fiskurinn gengur inn í íslensku lögsöguna úr þeirri færeysku og það er gífurlega mikilvægt að skuli veiðast svona í okkar lögsögu,“ er haft eftir Hálfdani á vefnum.

„Makríll af stærstu gerð“

„Þetta er makríll af stærstu gerð, um og yfir 500 gramma fiskur og gullfallegur. Þetta leit vel út þegar við héldum í land en hafa ber í huga að makríllinn fer fljótt yfir, hann er fljótur að koma og fljótur að fara. Þegar veiðar ganga svona vel verða menn eðlilega mjög bjartsýnir og vonandi verður áframhald á þessu. Ég geri ráð fyrir að það taki tæpa tvo sólarhringa að vinna þennan afla og að því loknu verður haldið rakleiðis út á miðin á ný,“ segir hann jafnframt á vefnum.

Heppnir að rekast á fiskinn

Sigurður Jóhannesson, skipstjóri á Beiti, var spurður hvort framhald væri á góðri veiði.

„Já það er hörkuveiði hérna hjá skipunum í veiðisamstarfinu en Börkur er farinn í land með um 1.500 tonn. Við erum komnir með um 1.700 tonn um borð en við munum ekki fara í land fyrr en lokið verður við að vinna úr Berki. Fram að því munum við veiða í önnur skip í samstarfinu. Þegar er búið að setja 400 tonn um borð í Margréti og akkúrat núna er verið að dæla í hana úr Vilhelm. Ég reikna með að það verði komin um 700 tonn í hana þegar því verður lokið,“ er haft eftir honum á vefnum.

„Við vorum virkilega heppnir að rekast á þennan fisk hér á Þórsbankanum en flest skip voru farin af þessu svæði þegar veiðin hófst af krafti. Þetta gaus allt í einu upp. Það má með sanni segja að makríllinn er dyntóttur fiskur. Nú eru allir bjartsýnir og við gerum okkur vonir um áframhaldandi góða veiði í íslenskri lögsögu.“

Gengur vel að vinna makrílinn

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, var spurður að því hvernig gengi að vinna makrílinn sem nú berst að landi.

„Það gengur vel. Til þessa hefur makríllinn verið hausskorinn en í morgun byrjuðum við að flaka. Makríllinn, sem nú er verið að vinna er afar stór og fallegur, en hins vegar er töluverð áta í honum. Vertíðin er farin að líta býsna vel út og við hér í fiskiðjuverinu erum bjartsýn á framhaldið,“ er haft eftir Geir á vef Síldarvinnslunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.24 426,59 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.24 400,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.24 334,47 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.24 185,24 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.24 164,75 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.24 190,21 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.24 191,71 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.24 Gíslabali ST 32 Handfæri
Þorskur 773 kg
Samtals 773 kg
21.5.24 Beta SU 161 Handfæri
Þorskur 403 kg
Ufsi 76 kg
Samtals 479 kg
21.5.24 Loki ÞH 52 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
21.5.24 Blær HU 77 Handfæri
Þorskur 819 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 824 kg
21.5.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.348 kg
Þorskur 137 kg
Skarkoli 19 kg
Samtals 1.504 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.24 426,59 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.24 400,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.24 334,47 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.24 185,24 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.24 164,75 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.24 190,21 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.24 191,71 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.24 Gíslabali ST 32 Handfæri
Þorskur 773 kg
Samtals 773 kg
21.5.24 Beta SU 161 Handfæri
Þorskur 403 kg
Ufsi 76 kg
Samtals 479 kg
21.5.24 Loki ÞH 52 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
21.5.24 Blær HU 77 Handfæri
Þorskur 819 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 824 kg
21.5.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.348 kg
Þorskur 137 kg
Skarkoli 19 kg
Samtals 1.504 kg

Skoða allar landanir »