„Maður notar þetta til að herða krakkana“

Ásmundur Sigurjón Guðmundsson besta við að róa frá Stykkishólmi vera …
Ásmundur Sigurjón Guðmundsson besta við að róa frá Stykkishólmi vera veðurfarið. Ljósmynd/Aðsend

„Það var ótíð þegar ég lagði 1. júlí og skítaveður framanaf en það hefur verið þokkalegasta veiði,“ segir Ásmundur Sigurjón Guðmundsson í samtali við 200 milur. Hann gerir út Hönnu SH-28 frá Stykkishólmi sem er einn fárra báta sem enn eru á grásleppuveiðum, en Hanna er jafnframt aflamesti grásleppubáturinn það sem af er júlí og kominn með 20,2 tonn.

Fæst þokkalegt verð fyrir afurðina? „Nei, um 200 krónur. Þetta er bara fjölskyldusport, maður notar þetta til að herða krakkana,“ segir Ásmundur og skellir upp úr. „Maður hefur aðgang að ódýru vinnuafli, þess vegna getur maður verið í þessu.“

Viktor Brimir og Adda Sigríður Ásmundsbörn þekjja handtökin.
Viktor Brimir og Adda Sigríður Ásmundsbörn þekjja handtökin. Ljósmynd/Aðsend

„Elsti strákurinn er búinn að vera með mér frá því hann var fimmtán ára og er núna 21. Svo rífast hin um að fá að vera með. Ég á fjögur börn og þau dreyma öll um að verða grásleppusjómenn, það er göfulegt markmið,“ segir Ásmundur og hlær.

Hann segir grásleppuveiðar geta verið mjög skemmtilegar ekki síst þegar viðrar vel, en veður var með ágætum undanfarna viku. „Maður rær alltaf ef það er þokkalegt veður. Það er fegurðin við að róa héðan, það er alltaf gott veður – nema í norðaustanátt.“

Gagnrýnir skipulag veiðanna

Veiðitímabil ársins hefur verið framlengt nokkur skipti og er nú gert ráð fyrir að veiðitímabilinu ljúki 12. ágúst, en samkvæmt breytingu á reglugerð um hrognkelsaveiðar sem birt var í stjórnartíðindum 14. júlí síðastliðinn verður heimilt að stunda grásleppuveiðar til 31. ágúst í Breiðafirði.

Ásmundur segir það fara alfarið eftir hvernig veiðin gangi hversu lengi hann haldi áfram. „Ég held það fari að draga úr, en maður veit aldrei.“

Hann kveðst hafa margra ára reynslu á grásleppunni að baki, en að hann hafi ekki verið tvö síðustu ár vegna þess hve mikil óvissa hefur verið í skipulagi veiðanna. „Þetta er búið að vera út og suður einhvernveginn, bara búið að vera rugl. Ég fór síðast þegar flautað var af á miðri vertíð og við fengum fimmtán daga. Þetta er mikil fyrirhöfn [að undirbúa veiðar] fyrir fimmtán daga.“

Guðmundur Arnar lætur sig ekki vanta um borð í Hönnu …
Guðmundur Arnar lætur sig ekki vanta um borð í Hönnu á grásleppuveiðum. Ljósmynd/Aðsend

Bara heppni að þakka

Sem fyrr segir er bátur Ásmundar aflahæsti grásleppubáturinn það sem af er júlí með rúm 20 tonn. Alls eru tíu bátar með yfir 10 tonn í júlí en Hanna SH er sá eini sem náð hefur yfir 20 tonnum, á eftir fylgir Andri SH-450 með 18,2 tonn.

Spurður hvernig það sé að vera aflahæstur segist Ásmundur ekki fylgjast með því, en segir svo „þetta er bara heppni.“

Grásleppubátar hafa landað rúmum 200 tonnum það sem af er júlí  og er eftir heimild til veiða á um 600 tonnum til viðbótar. Ekki er talið liklegt að takist að ná þeim afla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.5.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 112 kg
Þorskur 75 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 210 kg
20.5.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 9.463 kg
Þorskur 2.701 kg
Sandkoli 93 kg
Ýsa 88 kg
Skarkoli 83 kg
Samtals 12.428 kg
20.5.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.397 kg
Þorskur 53 kg
Rauðmagi 21 kg
Steinbítur 12 kg
Ýsa 2 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 1.487 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.5.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 112 kg
Þorskur 75 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 210 kg
20.5.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Steinbítur 9.463 kg
Þorskur 2.701 kg
Sandkoli 93 kg
Ýsa 88 kg
Skarkoli 83 kg
Samtals 12.428 kg
20.5.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.397 kg
Þorskur 53 kg
Rauðmagi 21 kg
Steinbítur 12 kg
Ýsa 2 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 1.487 kg

Skoða allar landanir »