Nýtt kerfi auki öryggi sjófarenda

Snorre Greil, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni og sérfræðingur á aðgerðasviði, segir …
Snorre Greil, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni og sérfræðingur á aðgerðasviði, segir nýja stafræna lausn styðja Landhelgisgæslu Íslands við að sinna lögbundnum verkefnum sínum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Nýlega fóru fram prófanir á nýju kerfi til að auka öryggi sjófarenda um borð í varðskipinu Þór. Um er að ræða nýsköpunarverkefni sem gengur undir heitinu AI-ARC og hefur Landhelgisgæslan tekið þátt í verkefninu undanfarin tvö ár ásamt yfir 20 samstarfsaðilum í tólf Evrópuríkjum.

Fulltrúar samstarfsaðilanna voru hér á landi í síðustu viku í tilefni af prófunum á kerfinu sem ætlað er að bæta upplýsingaflæði. „Prófanirnar gengu vonum framar og lausnin lofar svo sannarlega góðu,“ segir Snorre Greil, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni og sérfræðingur á aðgerðasviði, í Morgunblaðinu í dag.

Fulltrúar þeirra yfir 20 aðila sem koma að þróunarverkefninu voru …
Fulltrúar þeirra yfir 20 aðila sem koma að þróunarverkefninu voru hér á landi þegar prófanir fóru fram. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Tilgangur verkefnisins er að útbúa nýstárlegt, öflugt, skilvirkt og notendavænt upplýsingaumhverfi þangað sem unnt er að deila gögnum og upplýsingum um skipaumferð og annað sem sjónum tengist,“ útskýrir Snorre.

Hann segir þær stafrænu þjónustur sem mynda umrætt upplýsingaumhverfi síðan sjá um að greina gögnin. „Sem dæmi, þá geta þær greint ísjaka út frá gervitunglamyndum og ef skip nálgast er hlutaðeigandi aðilum, sem jafnframt eru notendur umhverfisins, gert viðvart. Í ár hefur það gerst tvívegis að skip hafi siglt á ísjaka, suður af Grænlandi og í Grænlandssundi. Þjónustunni er ætlað að draga úr líkum á óhöppum sem þessum og auka öryggi sjófarenda.“

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »