Lögreglukonan Inga Birna Erlingsdóttir er hörkutól t.a.m. fer hún létt með að reisa 236 kg BMW-mótorhjólið við sem hún mun keppa á í S-Afríku innan skamms. Hún var valin úr hópi 119 umsækjenda til að keppa í undankeppninni sem fer fram í S-Afríku en úrslitin verða svo haldin í Tælandi í byrjun næsta árs.
mbl.is hitti Ingu Birnu á æfingasvæðinu í gær þar sem hún eyðir nú öllum stundum enda þarf að vera í góðu formi til að geta hjólað 400-500 km á dag í krefjandi aðstæðum.
Í GS bikarnum keppa þriggja manna lið frá öllum heimshornum í ýmsum þrautum yfir marga daga á R 1200 GS mótorhjólum frá BMW. Hingað til hafa engar konur komist í gegnum forkeppnirnar sem haldnar eru í heimalöndum keppenda og ákvað BMW því að setja saman alþjóðlegt kvennalið til að sýna fram á að sportið sé ekki einungis fyrir karla.
Inga Birna er að láta langþráðan draum rætast með því að taka þátt í GS Bikarnum en hún er einstæð móðir og varð í maí fyrsta konan til að starfa í umferðardeild lögreglunnar í sjö ár þar sem hún sinnir skyldum sínum á stærðarinnar mótorhjóli sem vegur 340 kg!
Sjá fyrri frétt mbl.is: Í afreksúrtak mótorhjólakvenna
Hægt er að fylgjast með ferlinu hjá Ingu Birnu á vefnum http://www.myridemygs.com/ og á facebook.
Inga Birna fer á námskeið hjá Off Road Skills í Wales áður en hún heldur til Suður Afríku þann 9. september
<a href="http://www.offroadskills.com/" target="_blank">http://www.offroadskills.com</a>. En áhugasamir geta einnig farið á námskeið hjá skólanum hér á landi dagana
<span> 11.-15. september næstkomandi. Allar nánari upplýsingar um námskeiðið er hægt að nálgast um netfangið </span><span><a href="mailto:info@rmc.is" target="_blank">info@rmc.is</a></span>