„Amsterdjamm“ Borgarleikhússins

Starfsfólk Borgarleikhússins naut sín í Amsterdam.
Starfsfólk Borgarleikhússins naut sín í Amsterdam. Samsett mynd

Eftir kraftmikið og spennandi leikár hélt starfsfólk Borgarleikhússins í verðskuldaða vorferð til Amsterdam, en hún hlaut titilinn „Amsterdjamm“ og því greinilegt hvað var fram undan. 

Margir lögðu leið sína á Johan Crujiff Arena til að berja Beyoncé augum, en leikarinn Bergur Þór Ingólfsson var á meðal þeirra sem dönsuðu við lög drottningarinnar. Aðrir nýttu tækifærið og kíktu á úrslitaleiÞjóðadeildarinnar, en Spánn og Króatía áttust við í hörkuspennandi leik.  

Fjölmargir starfsmenn menningarhússins deildu myndum og myndskeiðum frá ferðinni á Instagram og sýndu meðal annars frá aðalkvöldinu sem fór fram á Rode Hoed, en starfsfólkið skemmti sér fram undir morgun og virðist sem ormurinn (e. the worm) hafi verið vinsælasta dansspor kvöldsins. 

View this post on Instagram

A post shared by Hlynur Pálsson (@hlaunpaul)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert