Þetta voru vinsælustu barnanöfnin 2023

Birnir var vinsælasta barnanafnið árið 2023!
Birnir var vinsælasta barnanafnið árið 2023! Samsett mynd

Gögn um vinsælustu fyrstu og önnur eiginnöfn nýfæddra barna á Íslandi árið 2023 hafa verið birt hjá Þjóðskrá, en þar kemur fram að vinsælasta fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra drengja hafi verið nafnið Birnir.

Alls var 30 drengjum gefið nafnið Birnir sem fyrsta eiginnafn, en næstvinsælustu nöfnin voru Emil, Elmar og Jón. Þá var nafnið Emilía vinsælast sem fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra stúlka, en 23 stúlkum var gefið nafnið. Þar á eftir voru nöfnin Sara, Sóley, Embla og Aþena. 

Þó nokkrar breytingar hafa orðið á vinsælustu nöfnunum milli ára, en árið 2022 var nafnið Birnir í fimmta sæti og tekur nú fyrsta sætið af nafninu Emil. Þá hefur nafnið Elmar tekið stórt stökk úr 27. sæti í það þriðja, og nafnið Jón hækkaði einnig. 

Hjá stúlkunum hefur nafnið Emilía tekið stökk úr 21. sæti í það fyrsta, en nöfnin Sara og Sóley hafa einnig hækkað verulega á vinsældalistanum frá því árið 2022. Það nafn sem tók stærsta stökkið á topp 10-listanum er þó nafnið Una sem fór úr 58. sæti í níunda sæti. 

Vinsælustu fyrstu eiginnöfn nýfæddra drengja 2023

  1. Birnir
  2. Emil
  3. Elmar
  4. Jón
  5. Óliver
  6. Aron
  7. Viktor
  8. Jökull
  9. Alexander 
  10. Atlas

Vinsælustu fyrstu eiginnöfn nýfæddra stúlkna 2023

  1. Emilía
  2. Sara
  3. Sóley
  4. Embla
  5. Aþena
  6. Emma 
  7. Katla
  8. Lilja
  9. Una 
  10. Viktoría

74,3% var gefið annað eiginnafn

Alls voru 3.159 einstaklingar fæddir árið 2023 sem gefið var annað eiginnafn, eða um 74,3% af heildinni. Meðal drengja var nafnið Þór vinsælast sem annað eiginnafn rétt eins og árið 2022, en þar á eftir komu nöfnin Máni og Leó. 

Meðal stúlkna var nafnið María vinsælast sem annað eiginnafn, en nafnið fór úr tíunda yfir í fyrsta sæti. Næstvinsælasta nafnið var Sól og þar á eftir nafnið Líf. 

Vinsælustu önnur eiginnöfn nýfæddra drengja 2023

  1. Þór
  2. Leó
  3. Máni
  4. Hrafn
  5. Örn 
  6. Ingi
  7. Logi
  8. Freyr
  9. Elí
  10. Orri

Vinsælustu önnur eiginnöfn nýfæddra stúlkna 2023

  1. María
  2. Sól
  3. Líf
  4. Rós
  5. Ósk
  6. Lilja
  7. Björk
  8. Rún
  9. Sóley
  10. Anna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert