Dóttir Örnu Ýrar og Vignis Þórs fékk krúttlegt nafn

Vignir Þór Bollason og Arna Ýr Jónsdóttir giftu sig í …
Vignir Þór Bollason og Arna Ýr Jónsdóttir giftu sig í fyrrasumar og eiga saman þrjú börn. Skjáskot/Instagram

Arna Ýr Jónsdóttir, fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi, og eiginmaður hennar Vignir Þór Bollason kírópraktor, gáfu dóttir sinni nafn á dögunum.

Stúlkan, sem er þriðja barn hjónanna, kom í heiminn í byrjun apríl, miðvikudaginn 3. apríl. Fæðing­in var heima­fæðing, en Arna Ýr eignaðist dótt­ur sína í upp­blás­inni sund­laug heima í stofu.

Arna Ýr og Vignir Þór deildu fallegri myndaseríu frá skírnardegi dóttur sinnar á Instagram í gærdag. Stúlkan hlaut nafnið Bella Dís. Aðeins var nánasta fjölskylda viðstödd athöfnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert