Grætur sig í svefn í kvöld

Fernando Torres á sér heita stuðningsmenn
Fernando Torres á sér heita stuðningsmenn Reuters

Fernando Torres grætur sig líklega í svefn í kvöld. Þá er ekki verið að vísa til knattspyrnumannsins knáa sem undirgengst nú læknisskoðun hjá Englandsmeisturum Chelsea, heldur stuðningsmanns Liverpool sem lét nýverið breyta nafninu sínu honum til heiðurs. Líklegt er að hann heimsæki þjóðskrá mjög bráðlega.

Torres, sem áður hét Shaum McCormack veitti breska slúðurblaðinu Sun viðtal skömmu fyrir áramót, en þá var nafnbreytingin nýgengin í gegn. Hann er fjögurra barna faðir og er dyggur stuðningsmaður knattspyrnufélagsins Liverpool, og vildi sýna það í verki með gjörningnum.

„Þetta er draumur sem er að rætast hjá mér. Ég veit að hann hefur ekki átt sitt besta tímabil, en hann er að mínu mati besti sóknarmaðurinn á jörðinni,“ sagði Torres um nafna sinn.

Frétt The Sun

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir