Gamlar dansklippur úr „Á tali með Hemma Gunn“ fléttast saman við frásögn úr reykvískum nútíma í nýju myndbandi hljómsveitarinnar Hjaltalín, við lagið Letter to [...] Myndbandið má sjá hér að neðan.
Hjaltalín er iðin við kolann þessa dagana því á morgun verður sveitin með stórtónleika í Eldborgasal Hörpu, en uppselt er á tónleikana. Uppselt er á tónleika Hjaltalín í Eldborg annað kvöld.
Myndbandið við Letter to [...] er það fimmta í röðinni af plötunni Enter 4, sem kom út í lok árs 2012. Fram kemur í fréttatilkynningu að sveitin muni líklegast láta staðar numið hér í myndbandagerð við plötuna, enda hefur hún hafið upptökur á nýju efni. Sveitin mun einmitt kynna nýtt efni á tónleikunum í Eldborg í Hörpu annað kvöld.
Upptökur á myndbandinu fóru fram á miðvikudagssíðdegi á skemmtistaðnum Paloma, en saman við það eru klippt gömul dansatriði úr spjallaþáttum Hemma Gunn.
Árni Filippusson sá um kvikmyndatöku og er þetta í annað sinn sem hann gerir myndband fyrir Hjaltalín, en hitt var við lagið Myself. Klipping var í höndum bræðranna Guðlaugs Andra og Sigurðar Eyþórssona.