Fyrrverandi hans Ronaldo vill heiðarlegan kærasta

Rússneska fyrirsætan Irina Shayk vill heiðarlegan kærasta.
Rússneska fyrirsætan Irina Shayk vill heiðarlegan kærasta. AFP

Fyrirsætan Irina Shayk er í leit að „heiðarlegum manni“ en hún er á lausu eftir að hafa hætt með fótboltakappanum Cristiano Ronaldo í desember. Þau höfðu verið saman í fimm ár.

Shayk kveðst kunna að meta heiðarlega og trygga karlmenn en ekki er vitað hvort Ronaldo hafi staðist þær kröfur hennar. „Þessir hlutir skipta mig mestu máli hvað varðar karlmenn,“ sagði fyrirsætan í viðtali við E! News.

„Nei, ekki enn. En kannski kemur eitthvað upp. Kannski er ég hérna í dag til að plana eitthvað, hver veit,“ sagði Shayk aðspurð hvort að hún væri búin að skipuleggja Valentínusardag sem er á næsta leiti. Þegar Shayk var svo beðin um að lýsa hennar draumastefnumóti sagði hún að það myndi innihalda dýrt kampavín, súkkulaði, góðan mat og skemmtilega kvikmynd.

Ronaldo og Shayk hættu saman seint á síðasta ári en sá orðrómur hefur komist á kreik að fótboltakappinn sé nú þegar kominn með nýja kærustu. Sú heppna mun vera spænska sjónvarpskonan Lucia Villalon.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir