Vinsældir #12stig tístanna halda áfram að aukast – og í raun má tala um algjöra sprengingu milli ára. Tvöfalt fleiri #12stig tíst komu á undanúrslitakvöldi Íslands í ár heldur en í fyrra, segir í frétt frá Vodafone.
Í gær birtust alls 13.495 tíst merkt #12stig, en í fyrra voru þau rétt um 6.000 á undanúrslitakvöldi Íslands. Því sendu íslenskir Eurovision tístarar út rúmlega helmingi fleiri tíst í ár heldur en í fyrra. Svo mikil var notkunin á þessu merki að um tíma var það meðal vinsælustu tístmerkja í heiminum.
Aukningin var einnig mikil á fyrra undanúrslitakvöldinu, því á þriðjudaginn voru send út rúmlega 6.000 tíst merkt #12stig, en 2014 voru þau um 3.600 kvöldið sem Ísland tók ekki þátt.
Alltaf hefur verið aukning milli ára, en þó var hún ekki mjög mikil milli áranna 2013-2014. Veruleg breyting varð því á þessu í ár, þegar #12stig tvöfaldast. „Þetta er vísbending um að Twitter-samfélagið á Íslandi hafi stækkað umtalsvert síðustu 12 mánuðina – og að Eurovision-áhuginn fer síst minnkandi í þeim hópi,“ segir í frétt Vodafone.
Athyglisvert verður hins vegar að fylgjast með umræðunni á laugardagskvöldið, því þetta er í fyrsta sinn síðan #12stig varð til sem Ísland tekur ekki þátt í lokakeppninni.
Vinsælasta tístið hingað til, þ.e. það tíst sem oftast hefur verið endurtíst í vikunni, á Ari Eldjárn frá því í gær:
Svíðþjóð svindlaði! Það voru miklu fleiri en 6 manns á sviðinu! #12stig pic.twitter.com/79h5l1U73k
— Ari Eldjárn (@arieldjarn) May 21, 2015