„Eins og að búa til blómakrans“

Silver Sepp leikur á heimasmíðuð hljóðfæri en Kristiina Ehin kveður.
Silver Sepp leikur á heimasmíðuð hljóðfæri en Kristiina Ehin kveður.

„Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Fagurt syngur svanurinn“. Hún er vísun í samnefnt þjóðlag sem Bjarni Þorsteinsson skráði í lok 19. aldar eftir gamalli konu sem bjó í dal inn af Siglufirði. Eins vísar þetta til ríkulegs fuglalífs á Siglufirði,“ segir Gunnsteinn Ólafsson, stofnandi og listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði sem nú er haldin í 16. sinn dagana 1.-5. júlí.

„Þjóðlagið verður flutt á tónleikum Hallveigar Rúnarsdóttur sóprans og Hrannar Þráinsdóttur píanóleikara í Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 2. júlí kl. 20 og fuglar koma víðar við sögu því Sinfóníuhljómsveit unga fólksins endar hátíðina á því að leika Konsert fyrir fugla og hljómsveit, Cantus Articus, eftir Einojuhani Rautavaara í Siglufjarðarkirkju sunnudaginn 5. júlí kl. 14,“ segir Gunnsteinn sem stýrir tónleikunum. „Á sömu tónleikum verður frumfluttur fiðlukonsert eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, sem er fyrsti fiðlukonsert sem kona semur á Íslandi og það telst vissulega til tíðinda. Þetta er framlag hátíðarinnar til 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna,“ segir Gunnsteinn, en einleikari er Sólrún Gunnarsdóttir. Þess má geta að tónleikarnir verða endurteknir í Langholtskirkju 7. júlí kl. 20.

Býr yfir stórkostlegri rödd

Spurður hvað beri hæst á hátíðinni í ár nefnir Gunnsteinn norska tónlistarhópinn Lux Illuxit sem heldur tvenna tónleika á fornhljóðfæri. „Miðvikudaginn 1. júlí flytur hópurinn helgisöngva og norsk þjóðlög sem tengjast Ólafi helga Noregskonungi í Bátahúsinu kl. 21.30 og daginn eftir flytur hann píslarvættissöngva sem varðveist hafa í stafkirkjum Noregs í Siglufjarðarkirkju kl. 13. Tónlistin sem leikin verður á þessum tvennum tónleikum hefur að öllum líkindum líka hljómað hérlendis á sínum tíma, því íslensk og norsk menning var samofin fyrr á tímum. Það er því mikill fengur að fá þennan hóp til Íslands.“

Aðspurður hvað hann hafi til hliðsjónar þegar komi að því að velja saman dagskrárliði líkir Gunnsteinn vinnunni við að setja saman blómakrans. „Hróður hátíðarinnar hefur borist víða. Það er því mjög mikill áhugi bæði meðal íslenskra og erlendra listamanna að fá að koma hér fram. Ég get ekki annað en valið það úr sem mér finnst eiga saman. Að stjórna tónlistarhátíð er eins og að búa til fallegan blómakrans. Þú getur ekki bara haft græn blóm í kransinum, heldur verður maður að hafa ríkulegan og litríkan vönd og velja þarf blómin eftir því.“

Að sögn Gunnsteins verður boðið upp á tæplega 20 tónleika dagana 1.-5. júlí á alls fimm tónleikastöðum auk þess sem torgið býður upp á tónleikahald sé veður gott. „Tónleikaaðstaðan hér er til fyrirmyndar,“ segir Gunnsteinn og bendir á að allir tónleikar eru ein klukkustund að lengd og svo gefinn hálftími til að rölta á næsta tónleikastað. „Auk tónleika bjóðum við upp á metnaðarfull námskeið dagana 2.-3. júlí. Pétur Björnsson kennir rímnakveðskap, Jamie Laval kennir skoska þjóðlagatónlist, félagar í Narinkka-tríóinu miðla nálgun sinni á finnska þjóðlagatónlist sem þeir kalla finnskt klezmer, Silver Sepp og Kristiina Ehin kenna eistnesk þjóðlög og -dansa og Árni Björnsson þjóðháttafræðingur fjallar um Sigursvein D. Kristinsson og tónlistarbyltinguna á Siglufirði, en Sigursveinn var brautryðjandi í tónlistarkennslu fyrir allan almenning óháð fjárhag. Auk þess verður hér Þjóðlagaakademían alla dagana, sem metin er til eininga við LHÍ, og barnanámskeið sem Björg Þórsdóttir heldur,“ segir Gunnsteinn og bendir á að hægt sé að skrá sig fyrirfram með því að senda tölvupóst á  festival@folkmusik.is eða við komuna til Siglufjarðar.

Af öðrum tónleikum hátíðarinnar nefnir Gunnsteinn opnunartónleika Þórhildar Pálsdóttur sem betur er þekkt sem Heddý. „Hún mun ásamt hljómsveit flytja nútímaþjóðlög, þ.e. íslenskar dægurperlur frá 20. öld,“ segir Gunnsteinn og segir ánægjulegt að geta lagt sitt lóð á vogarskálarnar til að sporna gegn æskudýrkun nútímans. „Heddý er komin yfir sjötugt, en býr yfir stórkostlegri rödd. Narinkka-tríóið heldur tónleika á Rauðku laugardaginn 4. júlí kl. 14. Sama dag kl. 15.30 flytja hjónin Silvar Sepp og Kristiina Ehin þjóðlagatónlist og runo-söng frá Eistlandi, en Sepp smíðar sín hljóðfæri á staðnum. Sama dag kl. 17 flytur Hundur í óskilum úrval eigin laga í Siglufjarðarkirkju við undirleik Lúðrasveitarinnar Svans undir stjórn Brjáns Ingasonar. Þetta verður vafalítið hápunktur hátíðarinnar í huga margra.

Við fáum hingað frábæra tónlistarmenn sem ætla að flytja ástar- og baráttusöngva Josés Afonso, sem var áhrifamesti lagahöfundur Portúgala á 20. öld, í Siglufjarðarkirkju föstudaginn 3. júlí kl. 20,“ segir Gunnsteinn, en söngvari er João Afonso og Filipe Raposa leikur á píanó.

„Við leggjum einnig áherslu á að ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu spor á þjóðlagabrautinni hafi möguleika á að koma hér fram. Það á t.d. við um þjóðlagasveitina Hlökk sem skipuð er ungum stúlkun úr LHÍ. Þær eru að feta sín fyrstu spor í túlkun á íslenskum þjóðlögum og eiga vafalaust framtíðina fyrir sér,“ segir Gunnsteinn, en Hlökk leikur í Siglufjarðarkirkju 3. júlí kl. 23.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar eru á folkmusik.is.

Sólrún Gunnarsdóttir frumflytur nýjan fiðlukonsert.
Sólrún Gunnarsdóttir frumflytur nýjan fiðlukonsert.
Jamie Laval fiðluleikari sérhæfir sig í skoskum þjóðdönsum.
Jamie Laval fiðluleikari sérhæfir sig í skoskum þjóðdönsum.
Poul Høxbro leikur norska tónlist með Lux Illuxit.
Poul Høxbro leikur norska tónlist með Lux Illuxit.
Øyonn Groven syngur og spilar á langspil og seljaflautu.
Øyonn Groven syngur og spilar á langspil og seljaflautu.
Jón Svavar Jósefsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir og Pétur …
Jón Svavar Jósefsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir og Pétur Húni Björnsson skipa söngkvartettinn Kviku.
Gunnsteinn Ólafsson.
Gunnsteinn Ólafsson.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg