Birta Líf hefur náð sáttum eftir ásakanir um netstríðni

Birta Líf Ólafsdóttir heldur úti hlaðvarpinu Teboðið ásamt vinkonu sinni …
Birta Líf Ólafsdóttir heldur úti hlaðvarpinu Teboðið ásamt vinkonu sinni Sunnevu Einarsdóttur. Samsett mynd

Hlaðvarpsstjarnan og markaðsfræðingurinn Birta Líf Ólafsdóttir vakti athygli á dögunum þegar hún ásakaði þekktan aðila um netstríðni í myndbandi á TikTok.

Birta sagði viðkomandi hafa gert mikið grín af hlaðvarpsþáttum Teboðsins, en Birta er annar stjórnandi hlaðvarpsins ásamt Sunnevu Einarsdóttur. Þegar leið á myndbandið kom í ljós að aðilinn sem hún ásakaði væri enginn annar en leikarinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola. 

Birta og Aron eru systkini og því varð fljótlega ljóst að aðeins væri um góðlátlegt grín á milli systkina að ræða. Sumir virtust þó taka myndbandinu alvarlega, enda virtist Birta vera afar ósátt og vera búin að fá nóg af stríðninni í myndbandinu. 

Nú hafa systkinin náð endanlegum sáttum. „Við erum löglega sátt. Við vorum að koma frá sáttarsemjara .... á blaði. Við erum búin að skrifa undir að við séum sátt,“ sagði Aron í nýlegu myndbandi sem birtist um málið. „Við erum góð. Þetta var bara grín,“ bætti Birta við. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg