Talið er að dönsk kona hafi verið um borð í flugvélinni, sem hvarf yfir Atlantshafi í morgun. Að sögn fréttavefjar Berlingske Tidende hefur utanríkisráðuneytið danska þó ekki staðfest þessar fréttir. 228 manns voru í vélinni, sem var á leið frá Brasilíu til Frakklands.
Óttast er að flugvélin hafi hrapað í hafið eftir að hafa orðið fyrir vélarbilun. Að sögn talsmanna flugfélagsins eru líkur leiddar að því, að eldingu hafi lostið niður í vélina og rafkerfið hafi bilað.
Farþegar vélarinnar voru aðallega frá Brasilíu en auk þess er talið að um 40 Frakkar, 30 Þjóðverjar, 5 Ítalir og einn Dani hafi verið um borð. Þá telja bresk yfirvöld líklegt að einhverjir Bretar hafi verið þar líka.
Brasilíski flugherinn sendi flugvélar af stað til leitar í morgun. Þá fór frönsk herflugvél, sem er með bækistöðvar í Senegal, út yfir Atlantshaf til að taka þátt í leitinni. Um er að ræða flugvél af gerðinni Breguet Atlantique, sem hefur mikið flugþol.
Hafi farþegaflugvélin farist með öllum um borð er þetta mesta flugslys, sem orðið hefur í sögu Air France frá árinu 2000 þegar Concorde flugvél félagsins brotlenti nálægt Charles de Gaulle flugvellinum en þá fórust 113 manns. Hlutabréf félagsins lækkuðu í verði í kauphöllinni í París í morgun í kjölfar fréttanna.