Ástralir búa sig undir frekari hamfarir

Julia Gillard varaði íbúa Queensland í dag við frekari hamförum.
Julia Gillard varaði íbúa Queensland í dag við frekari hamförum. MICK TSIKAS

Ástralir eru orðnir þrekaðir af þeim þrálátu flóðum sem valdið hafa gríðarlegri eyðileggingu í norðausturhluta landsins en það á ekki af þeim að ganga því í dag búa þeir sig undir að tveir hitabeltisstormar skelli á landinu. Óttast er að enn meiri eyðilegging verði í þeim fjölmörgum bæjum sem enn glíma við flóð.  

Hitabeltisstormurinn Anthony stefnir nú á Queensland og er búist við að hann skelli á ströndinni undir kvöld að áströlskum tíma. Honum munu fylgja óvenjuhá sjávarföll og mun reyna á flóðvarnir. „Eftir þetta erfiða sumar hugsar maður með sér: „Getur þjóðin í alvöru átt von á fleiri grimmilegum áföllum í Queensland?" og því miður virðist svarið vera já," sagði Julia Gillard forsætisráðherra Ástralíu í dag. „Við erum hörð af okkur og við komumst í gegnum þetta en það eru fleiri erfiðleikar á leiðinni í ofanálag við þær hörmungar sem þegar hafa orðið þetta sumar."

Rekja má erfiðleika Ástrala til veður- og haffræðifyrirbærisins La Niña sem orsakast af því að sjávarhiti í Kyrrahafi er undir meðalhita sem eykur líkurnar á hitabeltisstormum með ofsarigningum og flóðum.

Í kjölfar Anthony má búast við hitabeltisstorminum Yasi sem veðurfræðingar segja að muni hafa í för með sér vindhraða upp á nokkur hundruð kílómetra á klukkustund og gríðarlegar rigningar. Yfirvöld reyna eftir bestu getu að undirbúa sig til að draga úr hugsanlegu tjóni en hamfarirnar hafa þegar haft áhrif á líf þúsunda manna og valdið 35 dauðsföllum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert