Egypsk stúlka lét lífið við umskurð

Á myndinni má sjá konur í Senegal mótmæla umskurði kvenna. …
Á myndinni má sjá konur í Senegal mótmæla umskurði kvenna. Áætlað er að um 3 milljónir kvenna séu umskornar á hverju ári í Afríku. HO

13 ára gömul egypsk stúlka, Suhair Al-Bata'a, lét lífið er hún undirgekkst umskurð í þorpi skammt frá Kaíró á síðastliðinn fimmtudag.

Þetta kemur fram í frétt Al Arabya. 

„Við skildum dóttur okkar eftir hjá lækninum og 15 mínútum síðar hélt hjúkrunarfræðingur með hana á skurðstofu ásamt þremur öðrum stúlkum sem einnig voru á leið í umskurð,“ sagði Mohammed Ibrahim, faðir stúlkunnar. „Ég beið í hálftíma, vonandi að hún myndi vakna, en ólíkt hinum stúlkunum, gerði hún það ekki,“ sagði hann. Móðir stúlkunnar segist ætla krefjast réttlætis og fer fram á að læknirinn verði látinn sæta ábyrgð.

Lögmaður fjölskyldunnar segir að samkvæmt upplýsingum úr krufningarskýrslu megi rekja dánarorsök stúlkunnar til verulegrar lækkunar á blóðþrýstingi sökum áfalls.

Landssamtök kvenna í Egyptalandi hafa fordæmt atvikið og segja umskurð á stúlkum vera refsivert athæfi sem endurspegli gríðarlega villimennsku. Þá hefur UNICEF í Egyptalandi einnig fordæmt atvikið og segja umskurð á stúlkum hafa hvorki læknisfræðilegan né trúarlegan tilgang.

Talsmaður heilbrigðisráðuneytis Egyptalands sagði atvikið ekki hafa verið tilkynnt til landlæknis og áréttaði að umskurður á stúlkum væri ólöglegur. 

Árið 1996 var limlesting á kynfærum kvenna lýst refsiverð í Egyptalandi, en margar fjölskyldur láta þó enn umskera dætur sínar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert