Eftirlitsfyrirtækið ábyrgt í PIP-málinu

PIP-brjóstapúði.
PIP-brjóstapúði. AFP

Þýskt eftirlitsfyrirtæki er ábyrgt fyrir því að PIP-brjóstapúðarnir voru notaðir um allan heim en þeir voru gallaðir. Að þessu komst franskur dómstóll í dag. Mikil hræðsla greip um sig er fréttir bárust af því að púðarnir innihéldu iðnaðarsílikon og lækju frekar en aðrir brjóstapúðar.

Þýska eftirlitsfyrirtækið TUV Rheinland gaf púðunum grænt ljós og þúsundir kvenna létu setja þá í brjóst sín.

Í niðurstöðu dómsins segir m.a. að TUV Rheinland hafi „vanrækt skyldur sínar um eftirlit og árvekni“ með því að hafa samþykkt að PIP-púðarnir samræmdust evrópskar öryggisreglur jafnvel þó að þeir hafi innihaldið iðnaðarsílikon.

TUV Rheinland veitti PIP vottun um að brjóstapúðar fyrirtækisins stæðust evrópskar kröfur. Í ljós kom að PIP notaði iðnaðarsílikon í púðana og að púðarnir leka mun oftar heldur en aðrir brjóstapúðar.

Sex dreifingarfyrirtæki PIP í Búlgaríu, Brasilíu, Ítalíu, Sýrlandi, Mexíkó og Rúmeníu krefjast þess að TUV greiði þeim alls 28 milljónir evra í skaðabætur. Eins hafa yfir 1.600 konur sem fengu PIP púða höfðað skaðabótamál. Hver þeirra fer fram á 16 þúsund evrur í bætur sem þýðir að alls er TUV krafið um 53 milljónir evra, 8,8 milljarða íslenskra króna.

Talið er að um 300 þúsund konur í 65 löndum hafi fengið gallaða brjóstapúða frá PIP og 16 þúsund þeirra hafi látið fjarlægja þá eftir að upp komst um að iðnaðarsílikon hafi verið notað við gerð þeirra.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert