Játaði aðild að morðinu á Nemtsov

Zaur Dadajev var ákærður fyrir morðið í dag.
Zaur Dadajev var ákærður fyrir morðið í dag. AFP

Fyrrverandi lögreglumaður hefur játað aðild að morðinu á rússneska stjórnarandstæðingnum Boris Nemtsov. Tveir menn voru í dag ákærðir fyrir morðið. Annar þeirra, fyrrverandi lögreglumaður frá Tsjetsjeníu, játaði sína aðild.

Fimm menn sem grunaðir eru um morðið komu fyrir dómara í Moskvu í dag, rúmlega viku eftir að Nemtsov var myrtur á götu úti í Moskvu. Hann hafði verið harður gagnrýnandi Vladimírs Pútíns forseta.

Aðeins tveir voru þó ákærðir í dag en hinir þrír eru enn grunaðir um aðild. Þeir eru allir enn í gæsluvarðhaldi.

Zaur Dadajev, sem var lögreglumaður í Tsjetsjeníu og Anzor Gubasjev, sem vann fyrir öryggisfyrirtæki í Moskvu, voru handteknir á sunnudag í sjálfstjórnarhéraðinu Ingúsetíu í nágrenni Tsjetsjeníu. Þeir voru báðir ákærðir en Gubasjev neitaði sök.

Enn hefur ekki verið upplýst hvers vegna þeir myrtu Nemtsov. 

Anzor Gubasjev var ákærður en neitaði sök.
Anzor Gubasjev var ákærður en neitaði sök. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert