Búist er við að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, leggi fram frumvarp í næstu viku um að þjóðaratkvæði fari fram í landinu um veru þess í Evrópusambandinu. Cameron hét því á síðasta kjörtímabili að slík kosning færi fram ef hann sigraði þingkosningarnar í maí sem hann gerði þegar Íhaldsflokkur hans náði hreinum meirihluta á breska þinginu. Fréttavefurinn Euobserver.com segir frá þessu í dag.
Cameron hafði upphaflega í hyggju að halda þjóðaratkvæðið árið 2017 að loknum viðræðum við Evrópusambandið um breytta skilmála veru Breta í sambandinu en hefur hins vegar í seinni tíð viðrað hugmyndir um að flýta kosningunni og halda hana á næsta ári. Breskir fjölmiðlar telja líklegt að það verði ofan á. Skiptar skoðanir eru á meðal breskra kjósenda um veruna í Evrópusambandinu og hafa skoðanakannanir undanfarin misseri ýmist sýnt meirihluta fyrir því að vera áfram innan sambandsins eða meirihluta gegn því.