Árásarmaðurinn ákærður fyrir morðtilraun

Ayoub El Khazzani.
Ayoub El Khazzani. AFP

Ayoub El Khazzani hefur verið ákærður fyrir morðtilraun í hryðjuverkaskyni, en hann var yfirbugaður af bandarískum hermönnum í fríi í lest um helgina.

Hann er einnig ákærður fyrir vopnalagabrot og fyrir að vera í slagtogi veið hryðjuverkasamtök sem hafi það að markmiði að skipuleggja og framkvæma eitt eða fleiri hryðjuverk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert