Hvers vegna var meðferð þrettán ára gamallar stúlku sem lést í sumarbústað í Beitostøle í Noregi á nýársdag hætt? Þetta er spurning sem lögreglan sem kemur að rannsókn málsins veltir fyrir sér en að minsta kosti fimm læknastofur komu að meðferð hennar.
Líkt og áður hefur komið fram fannst þrettán ára stúlkan látin í sumarbústað í Valdres í Noregi að kvöldi nýársdags. Móðir stúlkunnar óskaði eftir aðstoð og kom sjúkralið á vettvang með þyrlu.
Við blasti kalt og stíft lík stúlkunnar sem var augljóslega vannærð og var hún úrskurðuð látin á vettvangi. Konan segir að stúlkan hafi skyndilega hnigið niður og hún hafi reynt að bjarga henni en án árangurs.
Saksóknari hjá lögreglunni, Mari Lauritzem Hasle, segir í vitali við Budstikka, en Aftenposten vísar til viðtalsins, að þetta sé það sem embættið sé að rannsaka núna án þess að vilja vera með nokkrar getgátur þar um.
Stúlkan hafði glímt við átröskun og samkvæmt Budstikka hefur rannsókn leitt í ljós að stúlkan var meðal annars í meðferð hjá barna- og unglingageðdeildum og héraðssjúkrahúsum vegna átröskunar. Lögreglan hefur upplýst um að banamein hennar var megurð og í bréfi sem fjölskylda stúlkunnar ritaði og birt var á vef Aftenposten á sínum tíma að móðir hennar hafi í mörg ár háð vonlaus baráttu við kerfið vegna veikinda dóttur sinnar án árangurs.
Móðir stúlkunnar er ákærð fyrir alvarlega vanrækslu en hún neitar því að hafa gerst sek um saknæmt athæfi.