Boris Johnson, borgarstjóri London, segist styðja útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Er ákvörðun hans talin vera stórt högg fyrir David Cameron, forsætisráðherra og samflokksmann Johnson í Íhaldsflokknum. Sagði Johnson í dag að eftir mikla umhugsun myndi hann mæla með að fólki kysi um að yfirgefa sambandið.
Johnson er vinsæll stjórnmálamaður og einn sá þekktasti í Bretlandi. Hefur ærslafullt far hans, mikið ljóst hár og hnittin svör hafa gert hann vinsælan hjá stuðningsmönnum Íhaldsflokksins sem og Verkamannaflokksins.
Johnson sagði Cameron hafa staðið sig mjög vel í samningaviðræðunum við leiðtoga Evrópusambandsins í fundarlotunni í vikunni sem er að líða, en að enginn gæti í raun sagt að þessar breytingar myndu hafa grundvallarbreytingar á samskipti ríkjanna eins og hugmyndin var upphaflega. Cameron sagði eftir fundinn að hann teldi Bretland eiga að vera áfram í sambandinu.
Meðal þess sem Johnson gagnrýndi var að völd Evrópudómstólsins væru „komin úr böndunum,“ og þá sagði hann að Bretland þyrfti að leitast eftir nýju sambandi við Evrópusambandið byggt á viðskiptum og auknu samstarfi.
Stjórnmálaskýrendur í Bretlandi telja að þetta útspil Johnson, sem hefur bæði komið fram sem stuðningsmaður Camerons og stundum verið honum ljár í þúfu, sýni að Johnson horfi til þess að verða arftaki Cameron í embætti leiðtoga Íhaldsmanna. Telji hann væntanlega líklegra til vinsælda þegar til lengri tíma sé litið að styðja nú útgöngu úr sambandinu.