Vaxandi stuðningur virðist vera við það á meðal breskra kjósenda að segja skilið við Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum tveggja nýrra skoðanakannana, en þjóðaratkvæði fer fram í Bretlandi um áframhaldandi veru landsins í sambandinu 23. júní.
Fram kemur á frétt breska dagblaðsins Guardian að tvær skoðanakannanir sem fyrirtækið ICM gerði fyrir blaðið sýni meirihluta fyrir því að yfirgefa Evrópusambandsins. Önnur þeirra var gerð á netinu en hin í gegnum síma. Til þessa hafa netkannanir bent til þess að mjótt væri á mununum en símakannanir sýnt meirihluta fyrir því að vera áfram innan Evrópusambandsins. Þetta er í fyrsta sinn sem símakönnun sýnir meirihluta fyrir úrsögn úr sambandinu.
Samanlagt sýna kannanirnar tvær að 52% eru hlynnt úrsögn úr Evrópusambandinu en 48% hlynnt áframhaldandi veru innan þess. Önnur skoðanakönnun, sem gerð var af fyrirtækinu ORB símleiðis, bendir til þess að forskot þeirra sem vilja vera áfram innan sambandsins hafi minnkað mikið.