Myndi ekki vilja að hann færi í fangelsi

Oscar Pistorius faðmar systur sína í réttarsal.
Oscar Pistorius faðmar systur sína í réttarsal. AFP

„Ég vil ekki fara aftur í fangelsi, ég vil ekki þurfa að eyða lífi mínu í að vera þar,“ segir hlauparinn Oscar Pistorius í viðtali við Guardian. Hann segist vilja trúa því að ef Reeva Steenkamp, kærasta hans sem hann myrti á heimili þeirra, gæti fylgst með honum í dag myndi hún ekki vilja að hann væri í fangelsi.

Hann segir að það sé krefjandi að aðlagast samfélaginu á ný í ljósi frægðar sinnar. Rifjar hann upp ferð í stórmarkaðinn fyrir skömmu þar sem ókunnug kona fór að öskra á hann og var honum afar reið vegna morðsins.

Í viðtalinu tekur Pistorius af sér gervifæturna og gengur um herbergið en þannig var hann þegar hann skaut kærustu sína til bana.

Pistorius var dæmd­ur í fimm ára fang­elsi fyr­ir mann­dráp af gá­leysi fyr­ir að valda dauða kær­ustu sinn­ar. Því var snúið við og í des­em­ber í fyrra ákvað dóm­ari að sak­fella hann fyr­ir morð og er nú komið að því að ákveða refs­ingu hans.

Hann gæti átt yfir höfði sér fimmtán ára fang­els­is­dóm fyr­ir morðið á Steenkamp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert