Lögreglan í Finnlandi rannsakar nú hvort að tengsl hafi verið milli árásarinnar í Turku í gær og þeirrar sem gerð var í Barcelona á fimmtudag. Árásarmaðurinn í Finnlandi, sem var skotinn og handtekinn, er frá Marokkó. Sá sem talinn er hafa ekið bílnum á mannfjöldann ár Römblunni er einnig þaðan. Unnið er með Europol að rannsókn málsins.
Finnska lögreglan segir að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða er maðurinn, sem er átján ára, hóf að stinga vegfarendur á markaðstorgi borgarinnar. Hún segir að vísbendingar séu um að árásin hafi verið skipulögð. Fimm voru handteknir í íbúð í Turku í nótt, grunaðir um að tengjast málinu. Þeir eru einnig marokkóskir ríkisborgarar. Þá hefur lögreglan lagt hald á bíl og lýst eftir manni sem sagður er hættulegur en haldi ekki til í Finnlandi í augnablikinu.
Tveir létust í árásinni og átta liggja særðir á sjúkrahúsi. Á blaðamannafundi sem lögreglan hélt í dag kom fram að árásinni hafi verið beint gegn konum. „Við höldum að árásarmaðurinn hafi ráðist sérstaklega gegn konum og að mennirnir sem særðust hafi verið að koma þeim til varnar,“ sagði aðstoðaryfirlögregluþjónninn Christa Cranroth á fundinum.
Yngsta fórnarlambið var fimmtán ára og það elsta 67. Fórnarlömbin eru af ýmsum þjóðernum, m.a. finnsk, bresk, ítölsk og sænsk.
Nafn mannsins hefur ekki verið gefið upp og lögreglan vill ekki svara því hvort að hann hafi áður komið við sögu hennar.
Íbúar Turku komu saman í dag og lögðu blóm á torgið þar sem árásin varð gerð. Fréttamiðlar segja að fleiri lögreglumenn en venjulega séu á götum borgarinnar.