Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, mun fara til Brussel á morgun á fund forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jean-Claude Juncker.
David Davis, sem fer með málefni tengd útgöngu Bretlands úr ESB, Brexit, verður með í för en á fimmtudag verður haldin ráðstefna leiðtoga ESB ríkjanna þar sem helsta umræðuefnið verður Brexit, samkvæmt upplýsingum AFP fréttastofunnar úr breska forsætisráðuneytinu.