Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að þeir sem styðja ekki áætlun hennar um útgöngu Breta úr sambandinu, sem er kennd við sveitasetur forsætisráðherra, Chequers, eru í pólitískum hráskinnaleik um framtíð Bretlands. Ítarlegt viðtal er við May í sunnudagsútgáfu Times í dag. Þar ítrekar hún að áætlunin sé sú eina raunhæfa í málinu og að hún eigi margt eftir ógert í embætti forsætisráðherra.
Viðtalið er birt fyrir fyrirhugaðan landsfund Íhaldsflokksins sem hefst í Birmingham á þriðjudag. Hún segir við Sunday Times að til standi að leggja aukna skatta á útlendinga sem kaupa fasteignir í Bretlandi auk fleiri hugmynda sem uppi eru innan ríkisstjórnarinnar.
Á vef Telegraph er rætt við David Davis sem sagði af sér ráðherraembætti í júlí og hefur hingað til lítið gagnrýnt May og hvernig hún hefur persónulega staðið að viðræðum við ESB. Í viðtalinu við Telegraph gagnrýnir hann ýmislegt sem betur mætti fara undir hennar stjórn varðandi Brexit en Davis gegndi embætti ráðherra Brexitmála.
May segir að Chequers-markmiðin væru eina raunhæfa leiðin til að tryggja „núningslaus“ viðskipti milli Norður-Írlands og Írlands eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Hún hefur hafnað tillögum Brexitsinna úr röðum þingmanna Íhaldsflokksins sem segja að hægt verði að koma í veg fyrir „hörð landamæri“ milli Írlands og Norður-Írlands með því m.a. að nota tæknilegar lausnir við tollgæsluna og breyta viðskiptafyrirkomulaginu sem er nú þegar til staðar. „Margar af þessum öðru lausnum byggjast á því að flytja landamærin,“ sagði forsætisráðherrann. „Við leysum ekki deiluna um hörð landamæri með því að hafa hörð landamæri 20 km inni á Norður-Írlandi, eða 20 km inni á Írlandi.“
Í viðtalinu við Sunday Times segir May að eina tilboðið sem sé uppi á borðinu sé Chequers áætlunin og hvetur ESB til þes að koma með tilboð á móti.
Í sama blaði er viðtal við Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra, þar sem hann leggur fram stefnuskrá sína um hvernig Íhaldsflokkurinn geti farið með sigur af hólmi í næstu kosningum.
Segir Johnson að ríkisstjórnin verði að hætta að elta allt sem Jeremy Corbyn geri ef ætlunin sé að hafa betur í baráttunni við Verkamannaflokkinn. Íhaldsflokkurinn þurfi að skapa sér sérstöðu.