Breska ríkisstjórnin samþykkti drögin að Brexit-samningnum, að sögn Theresu May, forsætisráðherra Bretlands.
Ríflega fimm klukkustunda fundi með ríkisstjórninni um málið er lokið.
„Sameiginleg ákvörðun ríkisstjórnarinnar var að stjórnvöld ættu að samþykkja drögin um útgönguna og útbúa pólitíska yfirlýsingu,“ sagði May fyrir utan skrifstofu sína í Downing-stræti.
Michael Barnier, aðalsamningamaður Evrópusambandsins í viðræðum við bresk stjórnvöld vegna Brexit, mun senda frá sér yfirlýsingu síðar í kvöld vegna málsins.
Samkvæmt heimildum blaðamanns Sky voru allt að tíu ráðherrar mótfallnir samningnum og er því ljóst að ríkisstjórnin er klofin í afstöðu sinni. Þá hefur þingmaðurinn Jacob Rees-Mogg hvatt samflokksmenn sína í Íhaldsflokknum til þess að kjósa gegn samningnum.
"I believe what I owe to this country is to take decisions that are in the national interest and I firmly believe with my head and my heart this is a decision in the best interest of the entire UK" says Theresa May
— Sky News (@SkyNews) November 14, 2018
Follow reaction to the statement here: https://t.co/hDmztN9Q6g pic.twitter.com/rJg7MbRhQG
PM Theresa May says cabinet backs #Brexit withdrawal agreement and calls it a "decisive step" enabling UK to move onhttps://t.co/0ThKBhqMO7 pic.twitter.com/gLyvmf4bcq
— BBC Breaking News (@BBCBreaking) November 14, 2018
Brexit deal: Theresa May wins cabinet support after five-hour meeting – Politics live https://t.co/Y3HIYorKuo
— The Guardian (@guardian) November 14, 2018