Liam Fox, ráðherra alþjóðaviðskipta í bresku stjórninni, segir helmingslíkur á því að Bretland muni ekki yfirgefa Evrópusambandið 29. mars ef þingmenn hafna Brexit-samningi Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, í næsta mánuði.
Fox sagði í samtali við Sunday Times að líkurnar á Brexit yrðu ekki 100% nema þingmenn styðji samninginn, að því er BBC greindi frá.
Hann sagði að ef samningnum verði hafnað myndi það „skemma fyrir traustinu á milli kjósenda og þingsins“.
Kosið verður um Brexit-samninginn þriðju vikuna í janúar.