Sky-fréttastofan mun að öllum líkindum aflýsa fyrirhuguðum kappræðum tveggja leiðtogaefna Íhaldsflokksins ef svo fer sem horfir að Boris Johnson neiti að taka þátt.
Keppinautur hans, utanríkisráðherrann Jeremy Hunt, hefur samþykkt að taka þátt í kappræðunum sem eiga að fara fram á morgun en Johnson hefur ekki þekkst boðið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sky. „Án þátttöku beggja frambjóðenda munu kappræðurnar ekki eiga sér stað,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
„Ekki vera bleyða,“ ritar Hunt grein í The Times í dag þar sem hann hvetur keppinaut sinn til að taka þátt í kappræðunum.
Johnson, sem þykir líklegri til þess að verða leiðtogi Íhaldsflokksins og þar með næsti forsætisráðherra Bretlands, neitaði á framboðsfundi í fyrradag að svara spurningum um meint rifrildi sitt við unnustu sína Carrie Symonds, sem varð til þess að áhyggjufullur nágranni parsins hringdi í lögreglu sem mætti svo á heimili þeirra.
Hunt segist ekki hafa áhuga á að ræða einkalíf Johnson, það sé auðvelt að gagnrýna hann fyrir einkalífið en að sama skapi sé það rangt. Johnson þurfi hins vegar að „herða sig og sýna þjóðinni að hann geti tekist á við þá miklu gagnýni sem þetta erfiðasta starf landsins hafi í för með sér.“
Johnson hefur hins vegar samþykkt að taka þátt í kappræðum 9. júlí, eftir að flokksmönnum hafa borist atkvæðaseðlar.