Vilja Brexit sama hvað það kostar

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, virðist hafa meirihluta bresks almennings á …
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, virðist hafa meirihluta bresks almennings á bak við sig þegar kemur að fyrirhugaðri útgöngu landsins úr Evrópusambandinu. AFP

Meiri­hluti Breta er hlynnt­ur því að Bret­land gangi úr Evr­ópu­sam­band­inu (Brex­it) 31. októ­ber sama hvað það þýðir. Jafn­vel þó það fæli í sér að breska þingið verði leyst upp til þess að koma í veg fyr­ir að það geti komið í veg fyr­ir út­göngu án samn­ings.

Þetta kem­ur fram í niður­stöðum nýrr­ar skoðana­könn­un­ar sem fyr­ir­tækið Com­Res gerði fyr­ir breska dag­blaðið Daily Tel­egraph, en Bor­is John­son, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, hef­ur sagt að til greina gæti komið að senda þingið heim til þess að greiða fyr­ir út­göng­unni.

Spurt var um af­stöðu fólks til þess hvort John­son þyrfti að koma Bretlandi úr Evr­ópu­sam­band­inu sama hvað það kostaði, þar á meðal ef það þýddi að leysa upp þingið ef þess gerðist þörf, til þess að hindra þing­menn í að stöðva út­göng­una. Drjúg­ur helm­ing­ur, eða 54%, sögðust sam­mála þessu en 46% lýstu sig hins veg­ar ósam­mála.

Einnig var spurt um af­stöðu fólks til þess hvort þingið væri í meiri takti við bresk­an al­menn­ing en John­son og sögðust 62% vera því ósam­mála en 38% sam­mála. Þá sögðust 88% telja þingið vera úr takti við al­menn­ing og 89% sögðust telja flesta þing­menn hunsa vilja al­menn­ings varðandi út­göng­una til þess að ganga eig­in er­inda.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka