Hæstiréttur Bretlands komst að þeirri niðurstöðu fyrir stundu að ákvörðun Boris Johnson forsætisráðherra landsins að slíta þinginu og sleppa þinghaldi í fimm vikur rétt fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu hafi verið ólögmæt.
Þingið hefur ekki starfað síðan 10. september.
Allir ellefu dómarar Hæstaréttar voru sammála. Fram kemur í úrskurðinum að þing eigi að starfa áfram líkt og það hafi aldrei farið í hlé. Forseti þingsins ákveður nú næstu skref.
Johnson er staddur vestanhafs, á allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna í New York. Í samtali við blaðamann í gær sagði Johnson að það væri ekki útilokað að hann myndi reyna aftur að senda þingið heim.
Skoskur dómstóll hafði komist að þeirri niðurstöðu að þingslitin hefðu ekki verið lögleg og áfrýjaði ríkisstjórnin þeirri niðurstöðu til Hæstaréttar Bretlands.
Dómarar hæstaréttar hlýddu þrjá daga í síðustu viku á rök deiluaðila og réttmæti þeirrar ákvörðunar Johnsons að slíta þinginu.