Segja Armena hafa rofið vopnahlé

Forseti Aserbaídsjan Ilham Aliyev fundar með leiðtogum hersins í höfuðborginni …
Forseti Aserbaídsjan Ilham Aliyev fundar með leiðtogum hersins í höfuðborginni Bakú fyrr í dag. AFP

Aserbaídsjan segir armenskar hersveitir hafa rofið vopnahlé sem Rússar höfðu milligöngu um fyrr í dag.

For­sæt­is­ráðherra Armen­íu greindi frá því snemma í morg­un að her­sveit­ir Asera væru að reyna að kom­ast inn á landsvæði Armena.

„Þrátt fyrir að það hafi verið lýst yfir vopnahléi klukkan 09:00 (0600 GMT) er Armenía að brjóta vopnahléið meðfram landamærunum harðlega með því að notast þar við fallbyssur og önnur þungavopn,“ sagði í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Aserbaídsjan.

Að minnsta kosti 49 armensk­ir her­menn hafa fallið í átök­un­um. Þau eru þau mestu á milli land­anna síðan átök brutust út á ný árið 2020 vegna héraðsins Nagorno-Kara­bakh.

Forsetisráðherra Armeníu Nikol Pashinyan ávarpar þingið í höfuðborginni Jerevan fyrr …
Forsetisráðherra Armeníu Nikol Pashinyan ávarpar þingið í höfuðborginni Jerevan fyrr í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert