Fordæma hernaðaraðstoð Bandaríkjanna

Íbúar Gasa horfa á eyðibyggð í borginni Rafah eftir loftárásir …
Íbúar Gasa horfa á eyðibyggð í borginni Rafah eftir loftárásir Ísraels. Hryðjuverkasamtökin Hamas fordæma aukna hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við Ísrael. AFP/Mohammed Abed

Hryðjuverkasamtökin Hamas fordæma samþykkt fulltrúardeildar Bandaríkjaþings að veita Ísrael aukna hernaðaraðstoð sem nemur um milljörðum dollara. Meginþorri aðstoðarinnar er ætlaður loftvörnum Ísraels. 

„Þessi aðstoð er á skjön við alþjóðleg lög og gefur grænt ljós á yfirgang síonísku öfgastjórnarinnar (Ísraels) á kostnað samlanda okkar,“ segir í yfirlýsingu frá Hamas. 

Segja Bandaríkin styðja við útrýmingu landa sinna 

„Við teljum þetta vera skref í átt að því að staðfesta opinbera stefnu Bandaríkjanna að styðja útrýmingu landa okkar á Gasa og við bakið á fasískum landtökuher,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. 

Fulltrúardeild Bandaríkjaþings samþykkti fjögur frumvörp í gær sem fólu meðal annars í sér hernaðarstuðning við Úkraínu, Ísrael og Tavían.

Um 13 milljörðum bandaríkjadala verður varið í hernaðaraðstoð við Ísrael. 

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, fagnaði aðstoðinni í gær og sagði að með henni væru Bandaríkin að standa vörð um vestræna siðmenningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka