Opnað fyrir umferð um Skeiðarársand

Karahnjukar.is

Lögreglustjórarnir í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornafirði hafa í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjórans og Vegagerðarinnar opnað veginn fyrir umferð yfir Skeiðarársand.  Lögreglumenn austan og vestan sands verða með eftirlit með umferð og fylgst verður með rennsli undir brýrnar og veginum lokað aftur ef það reynist nauðsynlegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert