Rennslismælingar sýna að Skeiðarárhlaupið nú er mun stærra en 1999: Hlaupið hefur líklega náð hámarki

Skeiðarárhlaupið virðist hafa náð hámarki í gær miðað við niðurstöðu rennslismælingar vatnamælingamanna við Skeiðará í gærkvöldi. Samkvæmt fyrstu úrvinnslu þeirra var rennslið í gærkvöldi um 2.600 rúmmetrar á sekúndu (m3/s) og hafði minnkað frá því í gærdag, að sögn Gunnars Sigurðssonar, verkfræðings á vatnamælingasviði Orkustofnunar.

Efnagreining hlaupvatnsins sýndi að vatn frá gosstöðinni í Grímsvötnum var komið fram í Skeiðará um 12 klukkustundum eftir upphaf gossins. Þá könnuðu vatnamælingamenn stöðu mála í Gígju og Núpsvötnum í gær. Rennsli þeirra reyndist ekki tiltakanlega mikið, en niðurstöður leiðnimælinga bentu til þess að talsvert hátt hlutfall hlaupvatns væri í báðum ánum.

Hlaupið í Skeiðará er þegar orðið mun stærra en hlaupið sem kom í ána í febrúar árið 1999. Síðdegis í gær var rennsli Skeiðarár komið í tæplega 2.900 m3/s, en hámarksrennsli í ánni í febrúar 1999 fór í 1.800 m3/s. Það hlaup kom í kjölfar goss í Grímsvötnum í desember 1998 en nú fór að gjósa eftir að vötnin hlupu. Til samanburðar má geta þess að hámarksrennsli í stóra hlaupinu sem kom í kjölfar gossins í Gjálp árið 1996 var 45.000 m3/s.

Síðdegis í gær var vatnshæð á sjálfvirkum mæli í Skeiðará komin upp í 2,80 metra, en fyrir hlaup var mælirinn í u.þ.b. 0,60 metra hæð.

Gunnar sagði í gærdag að leiðni í ánni hefði aukist jafnt og þétt. Hann sagði að vatn flæddi undir mestalla brúna yfir Skeiðará. Dálítið væri um jaka í ánni en ekki mikið.

Árni Snorrason, vatnamælingamaður hjá Orkustofnun, fór í eftirlitsflug Flugmálastjórnar síðdegis í gær ásamt fleiri vísindamönnum. Hann sagði vatnsmagnið í hlaupinu hafa aukist stig af stigi og álíka hratt og árið 1999. Það gæti einnig minnkað hratt aftur. Í fyrstu mælingum nú hefði rennslið verið 600 rúmmetrar á sekúndu, um 1.500 rúmmetrar á mánudag og tæpir 3.000 rúmmetrar á sekúndu síðdegis í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert