Olíutankur á hliðina á Seyðisfirði

Olíutankur valt á hliðina á Seyðisfirði síðdegis í dag. Ökumaður slapp ómeiddur en tankurinn er nokkuð skemmdur. Alls voru um 20 þúsund litlar af olíu í tankinum, en aðeins láku niður nokkrir lítrar því björgunarsveitinni á staðnum sem og slökkviliðinu gekk vel að hreinsa svæðið og dæla úr tankinum. Talið er að slysið megi rekja til mikillar hálku á götum bæjarins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert