Mótmælendum á Austurvelli fækkaði skyndilega til muna laust fyrir klukkan 20. En þeir mótmæla nú við Þjóðleikhúsið, en Samfylkingarfélag Reykjavíkur hyggst koma saman til fundar í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 20:30.
Enn eru nokkrir tugir manna á Austurvelli en meðal þeirra sem yfirgáfu völlinn voru flestir þeirra, sem barið hafa bumbur og annað slagverk taktfast í dag.