Mótmælendur við Alþingishúsið hafa kastað nokkrum púðursprengjum og flugeldum að lögreglu, sem myndað hefur tvöfaldan varnarvegg fyrir framan þinghúsið. Fólkið hefur sparkað í skildi lögreglumannanna og kastað í þá grjóti, eggjum og öðru lauslegu.
Mikill hiti er í fólki, sem ber á allt lauslegt og framleiðir mikinn hávaða. Ætla má að á annað þúsund manns sé við þinghúsið.