Frestur, sem tólf einstaklingar fengu til að skila athugasemdum við væntanlega skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hefur verið framlengdur til næsta miðvikudags. Að óbreyttu hefði fresturinn átt að renna út á föstudaginn kemur.
Umræddir einstaklingar fengu tækifæri til að koma á framfæri við nefndina athugasemdum sínum um afmörkuð atriði sem nefndin hefur til athugunar að fjalla um í skýrslu sinni til Alþingis með tilliti til þess hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirlit með henni.
Fram kemur á heimasíðu nefndarinnar, að hluti þeirra, sem veitt var færi á að koma að slíkum athugasemdum, hafi óskað eftir lengri fresti til þess að koma þeim á framfæri við rannsóknarnefndina. Því hafi nefndin ákveðið að framlengja frestinn til klukkan 17, miðvikudaginn 24. febrúar.
Nefndin hefur jafnframt ákveðið að þessi framlengdi frestur nái til allra þeirra tólf einstaklinga sem veittur var kostur á að senda nefndinni athugasemdir. Það útiloki þó ekki að þær verði afhentar nefndinni fyrr.
Að fengnum þessum athugasemdum mun nefndin fara yfir þær og ljúka vinnslu á skýrslu sinni til Alþingis en tímasetning og framhald á vinnu nefndarinnar að þessu leyti ræðst m.a. af efni þeirra athugasemda sem berast frá viðkomandi einstaklingum.