Árni M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, sagði við rannsóknarnefnd Alþingis, að á fundi fundi ráðherra með fulltrúum Landsbankans og Kaupþings helgina fyrir bankahrunið í október 2008, hefðu bankamennirnir logið að stjórnvöldum og verstur hafi Björgólfur Thor Björgólfsson verið.
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar er vitnað til handskrifaðs minnisblaðs Árna um að ráðherrar hafi fundað í Ráðherrabústaðnum með fulltrúum Kaupþings og Landsbanka. Þar var fjallað um sameiginlega tillögu bankanna sem í fólst, að
Icesave-innlán Landsbankans yrðu færð yfir til dótturfélags bankans, Heritabl Bank, með hraði.
Þá er haft eftir Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaupþings, að bankarnir get sett tryggingar að veði gegn fyrirgreiðslu Seðlabankans. Segir að Sigurður hafi í þessu samhengi nefnt hlutabréf danska bankans FIH.
Við skýrslutöku fyrir rannsóknarnefndinni ræddi Árni um minnisblöð sín af fundum með bankamönnum þessa helgi:
„Þessir hérna punktar hérna hjá mér, þetta eru lýsingar á fundum þar sem að bankamenn voru að ljúga að okkur. [...] Og verstur var Björgólfur [Thor Björgólfsson] [...] og hann var að ljúga að hinum líka og þeir komu svo bara um kvöldið og sögðu: Það er ekkert að marka það sem þessi maður segir. Þeir voru að reyna að finna leið til að sameina Kaupþing og Landsbankann til þess að þeir gætu staðið þetta og Björgólfur sagði bara: Við reddum þessu og við reddum þessu.“