Lán að fjárhæð rúmlega 3,6 milljarðar króna tengdust Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, í árslok 2007. Voru lánin að mestu á vegum eiginmanns hennar, Kristins Björnssonar.
Stærstu lánin voru til félags Kristins, Mercatura ehf., og af þeim voru hæstu lánin í gegnum framvirka samninga. Helstu verðbréf sem lágu að baki þeim samningum voru hlutabréf FL Group hf., Glitnis banka og Kaupþings banka og skuldabréf Icebank.
Í stærstu lánum og framvirkum samningum Kristins og Mercatura var Glitnir mótaðili. Þá var félag í helmingseigu Kristins, Geri ehf., með 200–300 milljóna króna lán hjá Landsbanka á tímabilinu.
Lán sem tengdust Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, alþingismanns, námu á tímabilinu tæplega 1,7 milljörðum króna og voru að mestu leyti á vegum eiginmanns hennar, Kristjáns Arasonar.
Stærstu lánin voru fyrst til Kristjáns beint en síðar til félags í hans eigu, 7 hægri ehf., vegna kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi. Kristján var framkvæmdastjóri í bankanum og tengdust lánin starfshlunnindum til hans.
Lán sem tengdust Herdísi Þórðardóttur, fyrrverandi alþingismanni, námu rúmum milljarði króna. Öll veruleg lán sem hennu tengdust á tímabilinu voru á vegum eiginmanns hennar, Jóhannesar Sigurðar Ólafssonar, eða félags í sameiginlegri eigu þeirra. Stærstu lánin voru í gegnum framvirka samninga um íslensk hlutabréf, svo sem hlutabréf FL Group hf., Landsbankanum, Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka og Actavis Group hf. Umfang viðskiptanna var mest árið 2006.
Á árinu 2005 gerði Jóhannes S. Ólafsson ehf., félag í sameiginlegri eigu þeirra hjóna, nokkuð af framvirkum samningum en um nokkru lægri fjárhæðir en Jóhannes sjálfur.
Lán til Lúðvíks Bergvinssonar, fyrrverandi alþingismanni, námu 755 milljónum króna. Þau voru nær öll á vegum fasteignafélags í helmingseigu hans, Miðkletts eignarhaldsfélags ehf., og voru þau fengin hjá Landsbanka Íslands
Lán sem tengdust Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi ráðherra, námu 283 milljónum króna. Öll veruleg lán sem henni tengdust, voru á vegum eiginmanns hennar, Péturs Þórs Sigurðssonar. Jafnframt voru öll veruleg lán til félags Péturs, Lindarvatns ehf. Lánveitandi félagsins var Landsbanki Íslands.
Lán til Árna Magnússonar, fyrrverandi ráðherra, námu mest 265 milljónum króna. Þau voru í Glitni en Árni var ráðinn sem forstöðumaður til bankans árið 2006. Lánafyrirgreiðslurnar voru annars vegar til Árna sjálfs og hins vegar til félags í hans eigu, AM Equity ehf., en það félag fékk 100 milljóna króna lán til hlutabréfakaupa í bankanum sjálfum.
Lán til Ármanns Kr. Ólafssonar, fyrrverandi alþingismanns, námu mest 248 milljónum króna. ,Helstu lánin voru í Kaupþingi banka hf. og hins vegar lán í Landsbankanum í gegnum framvirka samninga. Undirliggjandi í þeim samningum voru ýmis hlutabréf, innlend og erlend. Stærstu samningarnir voru um hlutabréf Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka.
Lán til Bjarna Benediktssonar, alþingismanns, námu 174 milljónum króna í ársbyrjun 2008. Þau voru í Gliti, annars vegar var um bein lán að ræða og hins vegar um lán í gegnum framvirka samninga. Fyrir utan einn um 45 milljóna króna framvirkan samning um hlutabréf Glitnis í upphafi árs 2006 voru þeir framvirku samningar allir um hlutabréf erlendra banka, Deutsche Bank, Morgan Stanley og Lehman Brothers.
Lán sem tengdust Ástu Möller, fyrrverandi alþingismanni, námu 141 milljón í lok ársins 2006. Öll veruleg lán voru á vegum eiginmanns hennar, Hauks Þórs Haukssonar. Stærsti hluti þeirra lána var í gegnum framvirka samninga sem Stafholt ehf., félag Hauks, og Investis ehf., félag í helmingseigu Stafholts, gerðu. Stærstu samningarnir voru um íbúðabréf, þ.e. skuldabréf gefin út af Íbúðalánasjóði. Framvirku samningarnir voru gerðir við Kaupþing en lán voru í Landsbanka Íslands.
Þau lán sem tengjast Ólöfu Nordal, alþingismanni, námu 113 milljónum í lok september 2008 og og voru il hennar og eiginmanns hennar, Tómasar Más Sigurðssonar, og voru aðallega í Landsbanka Íslands og Glitni banka.