Ekkert ferðafæri sé á svæðinu

mbl.is/Jónas Erlendsson

Samhæfingarmiðstöð beinir því til fólks sem ekki á brýnt erindi á svæðið þar sem er öskufall að vera ekki á ferðinni. Ekkert ferðafæri sé á svæðinu þar sem öskufallið er mest og ekkert skyggni er til gosstöðvanna.

„Að gefnu tilefni er ítrekað að mikið öskufall er á svæðinu frá Mýrdalssandi og austur fyrir Freysnes í Öræfum. Þjóðvegur 1, um Skeiðarársand, er lokaður frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi.


Ekki er talin ástæða til að rýma svæðið en íbúar og þeir ferðamenn sem þegar eru á svæðinu hvattir til að halda sig innandyra og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þeir sem þurfa að vera úti eru hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu.


Búið er að opna fjöldahjálparstöðvar í félagsheimilinu á Klaustri og Hofgarði fyrir þá sem treysta sér til að fara á þá staði. Íbúar á svæðinu eru hvattir til að hafa samband við nágranna sína og veita hver öðrum stuðning. Búið er að virkja hjálparsíma RKÍ 1717.


Verið er að vinna í að koma rykgrímum og hlífðargleraugum til þeirra sem eru á svæðinu en það gengur hægt vegna aðstæðna á vettvangi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert