Ferðamennirnir voru við Gullfoss

Gosmökkurinn frá Grímsvötnum.
Gosmökkurinn frá Grímsvötnum. Reuters

Fyrr í dag voru sendar út fréttir um að eftirgrennslan væri hafin eftir fjórum ferðalöngum er hugðust aka frá Höfn að sveitabænum Hunkubökkum vestur af Kirkjubæjarklaustri. Í ljós hefur komið að ferðalangarnir sem þangað höfðu boðað komu sína eru í góðu yfirlæti á Gullfossi.
 
Hins vegar fóru aðrir fjórir ferðalangar frá Höfn á tveimur bílum í morgun en ekki er vitað hvar þeir eru staddir. Nú þykir ljóst að þeir hafa ekki farið fram hjá lokunarpósti á veginum hjá Skaftafelli sem liggur inn á öskusvæðið, segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert