Gagnrýnir lokun flugvallarins

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur.

Ómar Ragnarsson, fréttamaður og flugmaður, gagnrýnir lokun Keflavíkurflugvallar og segir engu líkara en menn hafi ekkert lært frá gosinu í Eyjafjallajökli.

Ómar fjallar um lokunina á bloggi sínu í morgun.

„Svo er að sjá sem menn hafi ekki getað lært af eldgosinu í Eyjafjallajökli í fyrra. Þegar þetta er ritað er heiðskír himinn og hreinviðri yfir Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli og báðum völlunum lokað!

Þekkt er í tölvuheimum, að engin útkoma er betri en forsendurnar. Ef skakkar forsendur eru settar inn kemur arfavitlaus útkoma út. 

Úti í London sitja tölvutótar og eru greinilega með forsendur, sem soðnar eru upp úr flugatvikinu í Indónesíu hér um árið suður við miðbaug, þar sem veðrahvolfið nær miklu lengra upp en hér og flugstjóri þotu í blindflugi flaug henni inn í öskukökk sem hann áttaði sig ekki á. 

Í dag leikur um Ísland ískaldur og þurr heimskautavindur og auðvelt væri að fljúga utan allrar ösku með því að taka sveig fyrir sunnan öskumökkinn, sem þar að auki sést vel úr þotum. 

Þær eru búnar ratarsvörum sem sjást á skjám hjá flugumferðarstjórum og þess vegna er auðvelt að fljúga slíkt flug eftir blindflugsreglum, sem skylda er í meiri hæð en 5500 fetum yfir úthafinu, og hafa þar að auki frábært skyggni sem auka öryggisatriði !

Það sýnir vel hvað tölvulíkönin í London eru ófullkomin, að völlunum hér var lokað í svipuðum skilyrðum og nú eru, en hins vegar voru þeir opnir þá tvo daga sem öskufalla, öskumistur og svifryk varð mest á suðvesturhorninu,“ segir Ómar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert