Grunnskólamót úr skorðum

mynd/Andri Orrason

Tæplega 200 erlendir gestir áttu að koma til Reykjavíkur í dag vegna Grunnskólamóts höfuðborga Norðurlandanna. Vegna lokunar Keflavíkurflugvallar í kjölfar eldsumbrotanna í Grímsvötnum hafa gestirnir ekki komist til landsins í dag og er óvíst hvort að þeir fái flug á morgun verði á annað borð flogið til landsins.

Dagskrá mótsins er því farin verulega úr skorðum og óvíst enn sem komið er hvernig brugðist verður við. Ljóst er í það minnsta að Opnunarhátið mótsins verður ekki í fyrramálið kl. 9 eins og áætlað var og að ekkert keppt þann daginn heldur, að því er segir í fréttatilkynningu.


Starfsmenn Íþróttabandalagsins hafa unnið hörðum höndum í dag við að gera ráðstafanir vegna breytinga á dagskrá mótsins, svosem eins og að afboða rútur, gistingu, mat og afþreyingu. Einnig hefur farið mikill tími í að aðstoða erlendu gestina vegna flugs þeirra og svara spurningum almennt um gosið í Grímsvötnum. Fréttir erlendis eru greinilega mjög villandi því forsvarsmenn allra hópa gerðu ráð fyrir því að á öllu landinu væri mikið öskufall og að allir þyrftu að ganga um með grímur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert